Gervigreindar­ráðgjöf

Gervigreind er að opna nýja möguleika á öllum sviðum. Að átta sig á hvar hún skapar virði er mun erfiðara en að taka upp tæknina sjálfa. Við hjálpum fyrirtækjum og stofnunum að skilja hvað gervigreind getur gert fyrir þau.

Þjónustan

Úr möguleikum í ávinning

Byrjum á starfseminni, ekki tækninni

Gervigreind getur bætt upplifun viðskiptavina, aukið sjálfvirkni, bætt ákvarðanatöku og gert nýja þjónustu mögulega.

Við vinnum náið með þínu teymi við að skilja hvernig fyrirtækið vinnur og hvar eru alvöru tækifæri til að gera betur. Síðan skilgreinum við hvar gervigreind getur haft mikil áhrif.

Forgangsröðum réttu tækifærunum

Það er enginn skortur á hugmyndum um notkun gervigreindar. Aðalmálið er að ákveða hvaða hugmyndir á að vinna með. Við hjálpum þér að meta tækifæri út frá virði, þörfum viðskiptavina og tæknilegum skorðum. Niðurstaðan er forgangsraðaður verkefnalisti sem hægt er að ráðast í skipulega.

Prófum áður en stærri ákvarðanir eru teknar

Sumar hugmyndir þarf að prófa í raunverulegum ástæðum áður en það er vitað hvert virði þeirra er. Við getum búið til hraðar tilraunir eða frumgerðir sem staðfesta tilgátur, prófa tæknina og byggja upp skilningur á hvernig gervigreindardrifin þjónusta eða ferli virkar. Markmiðið er að draga úr óvissu áður en fjárfest er í hugmyndinni.

Úr ráðgjöf í framkvæmd

Kolibri býður upp á beina leið úr skilgreindu tækifæri yfir í framkvæmdina. Ráðgjafar, hönnuðir og forritarar vinna þétt saman í okkar verkefnum. Þegar tækifæri er þess virði að grípa, þá getur sama teymi gert það að veruleika - m.a. skilgreint og hannað lausnir, fléttað gervigreind inn í  núverandi ferla og þróað nýjar lausnir.

Í hnotskurn

Hvað gerum við?

  • Greining á tækifærum til notkunar gervigreindar
  • Kortlagning ferla og þarfa
  • Stefnumótun og forgangsröðung gervigreindarverkefna
  • Mat á fýsileika, virði og áhættu
  • Prófun valdra tækifæra
  • Þróun og innleiðing lausna

Dæmigerð nálgun

Kjarni

  • 1 ráðgjafi
  • 1 tæknilegur sérfræðingur


Stuðningur

  • UI/UX hönnuður
  • Hugbúnaðarþróun
  • Högun
  • Notendarannsóknir

Dæmigerð lengd

  • Fyrsta aðkoma: 2–4 vikur
  • Frekari aðstoð eftir þörfum
Verkefni

Lausnir úr þjónustunni