Mælanleiki mállíkana
Merkið er samsett úr stöplariti, sem endurspeglar gögn og mælingar, og riti sem sýnir hjartslátt eða hljóðbylgjur. Merkingin er táknræn því mælaborðið sýnir einkunnir mállíkana og leggur þ.a.l. mat á hæfni líkanana á íslensku.



Mælaborð íslenskrar máltækni eða MÍMT, tekur saman niðurstöður alþjóðlegra prófa og sýnir hæfni helstu mállíkana, á m.a. lesskilningi og rökleiðslu.
Markmiðið með mælaborðinu var að gera allar þessar upplýsingar aðgengilegar á einum traustum stað með þægindi og einfaldleika í fyrirrúmi.

Merkið er samsett úr stöplariti, sem endurspeglar gögn og mælingar, og riti sem sýnir hjartslátt eða hljóðbylgjur. Merkingin er táknræn því mælaborðið sýnir einkunnir mállíkana og leggur þ.a.l. mat á hæfni líkanana á íslensku.



Eitt letur var valið fyrir allan texta, en ákveðið var að nota svokallaða mono útgáfu í gröf og önnur töluleg gögn vegna þess hve auðskannanlegt það er.
Litir og ásýnd samsvarar Árnastofnun og þeirra hönnunarbrag en hefur einnig sinn eigin stíl og nálgun. Notast var við mjúka gráa tóna í viðmótinu, ásamt hlýjum appelsínugulum lit fyrir áherslur.




Verkefnið var unnið tiltölulega hratt með í samstarfi við Árnastofnun og Almannaróm. Kolibri sá um mörkunina og vefhönnunina, á meðan Árnastofnun forritaði og útbjó gögnin og gagnatengingarnar.



