Snjöll flokkun gagna með gervigreind

Með þróun gervigreindar er nú hægt að sjálfvirknivæða fyrirferðamikla ferla og minnka handavinnu sérfræðinga.

2026

AI

TM

2

mín lestur

Verkefnasaga

Handvirkir ferlar sjálfvirknivæddir

Handavinna við yfirferð gagna og reikninga er daglegt brauð hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum. Tíminn sem fer í að fara yfir textalykla og flokka fyrir bókhald getur numið tugum vinnustunda í hverjum einasta mánuði.

Þetta þekkir tryggingafélagið TM mjög vel, en í hverjum mánuði þurfa sérfræðingar TM að fara yfir rafræna reikninga, lesa 5000 greiðslulínur á erfiðu sniði, línu fyrir línu og handskrifa inn í kerfi. Vinnan og villuhættan í kringum þessa tímafreku handavinnu mælist 80–100 vinnustundir í hverjum einasta mánuði. TM er í innleiðingu að fá fleiri til að senda inn rafrænt og því mun tímasparnaðurinn aukast með tímanum.

Hér áður fyrr var engin leið til að leysa þetta fyrirferðamikla verklag hjá TM og nánast ómögulegt að sjálfvirknivæða. En nú, með þróun gervigreindar var loksins hægt að einfalda þessa ferla og búa til trausta sjálfvirkni með nýjustu tækni að vopni.

Sérhannað gervigreindarlíkan þjálfað

Öryggi og áreiðanleiki gagna var í forgrunni í verkefninu. Stórt tungumálalíkan (LLM) var þjálfað með gögnum frá TM og er eingöngu notað fyrir þessi gögn. Líkanið er lokað og hýst hjá TM og því fullkomlega öruggt og tryggt að gögnin yfirgefa aldrei TM og þeirra umhverfi. Þó að þetta sé sérhönnuð lausn fyrir TM, þá er hún engu að síður ódýr í rekstri.

Lausnin les hverja færslu, greinir og flokkar í kostnaðarflokk (t.a.m. vinna, efniviður, þjónusta) og færir loks inn í tjónakerfi TM. Líkanið lærir líka með tímanum og getur sent gögn aftur til baka ef þau eru ekki fullnægjandi. Líkanið er það snjallt að það lærir af mistökum og nær að greina óséð gögn tiltölulega hratt og örugglega.

Náin samvinna

Verkefnið var unnið í nánu samstarfi TM og Kolibri, en samhliða þróun á gervigreindinni var þróað vefviðmót fyrir sérfræðinga til að fylgjast með gögnunum og sýsla með þau ef þarf. Viðmótið var sérhannað með þarfir sérfræðinganna í huga. Sérfræðingum TM finnst gott að geta fylgst með, en eftir að gervigreindin tók til starfa hefur traust sérfræðinga TM á gervigreindinni aukist til muna. Þau sáu með eigin augum hve áreiðanlegt líkanið var og er.

Útkoman mælst 99% áreiðanleg

Síðan að gervigreindin kom til sögunnar hefur greining og flokkun gagna mælst 99% rétt. Frá fyrstu stundu var lausnin áreiðanleg, en með tímanum hefur líkanið orðið enn betra og nákvæmara. Tölfræðigögn sem unnin eru upp úr vinnslunni hafa reynst fyllilega marktæk og leitt til mikils sparnaðar í rekstri TM.

Sjálfvirknivæðing með gervigreind þarf ekki að vera flókin, svo lengi sem að unnið er að henni með hagaðilum og sérfræðingum. Fólkið leiðir þróunina með gervigreindinni, en ekki öfugt.