Bylting í meðferð dómsmála
Réttarvörslugátt er byltingarkennt kerfi sem hefur einfaldað og stafrænivætt samskipti og gögn á milli aðila og stofnana í réttarvörslukerfinu á Íslandi. Pappír sem var fluttur í ferðatöskum á milli embætta mun brátt heyra sögunni til.
Dómsmálaráðuneytið er í forsvari fyrir verkefnið og hefur síðan árið 2020 unnið að því í samstarfi við Kolibri, dómstólasýsluna, ákæruvald, lögreglu, fangelsismálastofnun og lögmannafélagið.
Nýlega var gangsettur stærsti áfangi Réttarvörslugáttar frá upphafi. Viðbótin kallast stafrænar birtingar og inniheldur stafræna birtingu ákæra, rafræna boðun í dómsal og stafræna birtingu dóma á Ísland.is. Hugmyndin að lausninni varð til fyrir alllöngu, en það þurfti lagabreytingar til þess að það væri mögulegt að gera þetta stafrænt.
Breyttir tímar, skilvirkari leiðir til framtíðar
Fyrir komu stafrænna birtinga þurfti lögreglan að fara yfir ákærur og dóma, skrá í mismunandi kerfi, jafnvel í fleiri en eitt kerfi og loks útdeila upplýsingum um málin á sértæka birtingarmenn. Birtingarmennirnir fóru þá á stúfana til að finna viðkomandi einstakling og birta ákæruna, boðunina eða dóminn á pappír. Birtingarmenn þurftu jafnvel að leita einstaklinga uppi til þess að hægt væri að staðfesta að birtingin hefði átt sér stað í raun og veru, því þá var þetta eina leiðin fyrir lögregluna til að birta einstaklingum þessar upplýsingar.
Með tilkomu stafrænna birtinga hefur handavinna minnkað og ferðalög með gögn eru á undanhaldi. Nú eru gögnin aðgengileg í rauntíma og lögreglan sem og ríkissaksóknari hefur mun betri yfirsýn og getur fylgst með framvindu birtinga út um allt land.
Birtingar hafa farið fram úr björtustu vonum. Tæplega 80% einstaklinga sækja gögnin beint í pósthólfið sitt, sem sýnir skýrt hversu vel lausnin nýtist í framkvæmd. Við erum afar stolt af þessari nýju lausn sem einfaldar verulega störf lögreglu og dómstóla. Um leið bætir hún þjónustu og aðgengi fyrir þá einstaklinga sem málið varðar og gerir ferlið bæði hraðara og skilvirkara.
- Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, dómsmálaráðuneytið
Sjálfsafgreiðslulausn á Ísland.is
Stafrænar birtingar er sjálfsafgreiðslulausn fyrir einstaklinga (kallaður ákærði), sem þarf að ákæra, boða í dómsal eða birta dóm eftir að máli líkur. Lausnin virkar þannig að allar upplýsingarnar birtast ákærða í pósthólfi hans á Ísland.is. Á Mínum síðum á Ísland.is getur ákærði séð ákæruna og/eða dóminn og tekið afstöðu sé þess þörf. Allar upplýsingar og aðgerðir eru því á einum stað, á auðkenndu svæði ákærða inn á Ísland.is.
Hluti birtinganna fór í loftið 2024 og fleiri uppfærslur í lok árs 2025 og hefur notkun og reynsla farið fram úr björtustu vonum. Á þeim stutta tíma síðan stafrænar birtingar fóru í lofið hafa tæplega 80% boðana í dómssal farið þar í gegn og rúmlega 70% dóma birtir einstaklingum stafrænt. Gera má ráð fyrir að ávinningur aukist verulega á árinu 2026, þegar enn stærri hluti ákæra, boðana og dóma verða birtir fólki á Ísland.is. Raunin er sú að málum fer fjölgandi með hverju árinu og því mikilvægt að huga að leiðum til að auka skilvirkni með stafrænum lausnum. Allt til bóta fyrir íslenskt samfélag.
