HMS

Byggingarleyfi á Íslandi er nýtt vefviðmót fyrir þátttakendur í byggingarverkefnum og hluti af mannvirkjaskrá HMS. Viðmótið hraðar afgreiðslu byggingarleyfa og bætir þjónustu sveitarfélaga.

Kolibri leiddi þarfagreiningu sem hófst um mitt ár 2023, og hefur unnið af fullum krafti hönnun og þróun viðmótsins með HMS frá 2024. Viðmótið fór í loftið hjá Reykjanesbæ í nóvember 2024 og fleiri sveitarfélög fylgja í kjölfarið.

Sýnin

Allt á einum stað

Með nýrri umsóknargátt fyrir byggingarleyfi eru stigin markviss skref af því að færa allt leyfisveitingaferlið og öll sveitarfélög landsins á einn stað. Þjónusta við húsbyggjendur, hönnuði og verktaka er stórbætt með notendavænum leiðbeiningum og gagnaskilum, skýrleika og sýnileika fyrir alla aðila og tilkynningum þegar mikilvægum áföngum er náð.

No items found.
This image is required!
No items found.
No items found.
Viðmótið

Viðmótið er miðpunktur samskipta og gagna fyrir alla aðila sem koma að byggingarverkefnum. Hönnuðir senda inn teikningar, byggingarstjórar tilnefna iðnaðarmenn og húsbyggjendur fá tilkynningar og upplýsingar til að ýta á eftir því sem er að tefja framvindu mála.

Sveitarfélög munu fá notendavænt afgreiðsluviðmót sem veitir betri yfirsýn yfir mál í gangi, eykur sjálfvirkni í frágangi gagna og dregur úr álagi vegna fyrirspurna. Öll gögn flæða sjálfkrafa í málaskrárkerfi sveitarfélaga og mannvirkjaskrá HMS.

No items found.
This image is required!
No items found.
No items found.
Innleiðing

Fyrsta útgáfa er umsóknarferli fyrir hönnuði sem hefur verið gangsett hjá Reykjanesbæ. Reykjavíkurborg mun opna fyrir umsóknir í nýju viðmóti seinna á árinu 2025.

Áhrifin af verkefninu munu m.a. vera styttri afgreiðslutími byggingarleyfa, minni handavinna hjá sveitarfélögum og stórbætt gagnasöfnun og tölfræði um mannvirki og uppbyggingu húsnæðis á Íslandi.

No items found.
This image is required!
No items found.
No items found.
No items found.
This image is required!
No items found.
No items found.
Árangur

Uppbyggingin er hafin

Viðurkenningar

Íslensku vefverðlaunin 2024
Tilnefning
Innri vefur ársins

Ummæli

Hugrún Ýr Sigurðardóttir
Teymisstjóri mannvirkjaskrár
HMS

Innkoma Kolibri í endurhugsun, endurhönnun og þróun okkar á sameiginlegu viðmóti sveitarfélaga fyrir byggingarleyfi hefur skipt sköpum fyrir verkefnið. Vinnubrögð og samvinna hafa verið til fyrirmyndar. Með notendamiðaðri hugsun og skýrri framtíðarsýn hefur okkur í sameiningu tekist að hrífa sveitarfélög og samtök fagfólks með okkur í vegferðina. Kolibri er enn að vinna þétt með okkur að því að bæta umhverfi mannvirkjamála á Íslandi með reglulegum litlum sigrum.

Mælingar